01. febrúar 2012

starfsmenn í þjálfun á plani:)

 Það virðist sem hann vetur konungur sé samur við sig og finnist gaman að sína hvers er megnugur þessar vikurnar, en nú er farið að hlýna og fer vonandi að styttast í vorið. Hér er þjálfað á fullu flesta daga inni sem úti, rekstrum og teymingartúrum. Nú fer að styttast í vetrarmótin og ætlum við að vera með í vetur í KB-deildinni. Fengum skemmtilega heimsókn um liðna helgi, þá kom lítill frændi, afa og ömmusrákur með foreldrum sínum. Áttu þau góðar stundir saman Kristín Eir og Bjarni Valur, léku sér og prökkuðust saman. Auðvitað skelltu þau sér í sarfsþjálfun í fjósið með ömmu og afa sínum. Það fylgja með nokkrar skemmtilegar myndir af þeim að störfum.

Kristín Eir og afi að þjálfa gæðinginn sinn hann Sóló

Starfsmenn á plani
Starfsmenn í þjálfun
Ein sátt við vinnubrögðin
Þjálfað á fullu
Koma svo Sómi
Tamingin tókst vel, þjáll og prúður
22. janúar 2012

Loksins sást til sólar þetta þetta árið!!!

Þorinn byrjar vel með blíðu veðri og sást meira að segja til sólar eftir mjög ófriðsaman tíma undanfarnar vikur í veðri. Það var því upplagt að nota tækifærið að smella nokkrum myndum í blíðunni. Set hér með til gamans myndir af Hnjúk frá Skáney sem er graðfoli á fjórða vetur sem er búið að vera temja í 2 mánuði. Hann er undan fyrrverandi heimsmeistaranum Tind frá Varmalæk og Gná frá Skáney. Hnjúkur er mjög lofandi foli sem sýnir strax mikið öryggi og jafnvægi á gangi og verður gaman að fylgjast með hvernig hann mun þróast fram á vor.                                   

Hnjúkur frá Skáney á 4 vetur

08. janúar 2012

Brynhildi líkar vel í nýum heimkynum.

Brynhildur frá Skáney

Alltaf mjög gaman að fá sendar myndir og góðar fréttir af hestum sem hafa verið seldir. Fengum sendar myndir af henni Brynhildi sem för til Sviþjóðar í haust. Gengur mjög vel og eru nýir eigendur mjög ánægðir með hana. Vírðist hún una sér vel á nýum stað. Það er Segerbak fjölskyldan sem á hana, og eiga þau einnig hana Freyju sem verður hér áfram í uppeldi og tamningu.

Annars í fréttum er að illfært er vegna ís og hálku á vegum hér í kring. Hann Helgi sem hefur verið að hjálpa okkur undanfarið lét sig hafa það og skautaði norður á Hóla með hestakerru í dag. Með smá tilfæringum til þess að komast út á veg. Þökkum við honum kærlega fyrir alla hjálpina og óskum honum góðs gengis í skólanum í vetur.  

02. janúar 2012

Jól og áramót að baki:)

Kristín Eir að virða fyrir sér Elg

Þá eru jól og ármót með tilheyrandi veisluhaldi að mestu lokið í þetta skiptið, allir vel mettir og sælir. Hátíðirnar gengu sinn vanagang og var skepnum sint eins þurfti því ekki er hægt að loka að fara í frí eins margir gera. Við reynum þó að hægja aðeins á starfseminni yfir rauðustu daganna. Randi, Haukur og Kristín Eir fóru til Noregs yfir jólin og komu til baka á gamlársdag. Þau áttu góða daga með fjölskyldu og vinum með tilheyrandi jólaboðum og hittingum. Fóru þau og skoðuðu skíðastökkpallinn í Holmenkollen í Ósló og svæðið þar í kring, skoðuðu skíðasafnið sem er staðsett undir stökkpallinum sem er mjög flott í alla staði, mæli með því að kíkja þarna ef þið eigið leið um Ósló. Set hér með myndir frá Noregi.                  

22. desember 2011

Gleðileg Jól og farsælt komandi ár :)

Óskum ætingjum, vinum og viðskiptavinum um allan heim gleðilegra jóla og gæfu á nýju ári. Hlökkum til að hittast hress á nýju ári. Jólakveðjur frá öllum á Skáney.

18. desember 2011

Nóg um að vera

Það hefur mikið verið þjálfað undanfarið enda veður og reiðfæri verið mjög gott. Hún Vanessa sem hefur verið að hjálpa okkur í haust fór heim til Asturríkis og þökkum við henni kærlega fyrir frábæra hjálp og vonum að hún komi aftur í heimsókn til okkar.

Helgi Eyjólfsson vinur okkar kom núna í vikunni og ætlar að hjálpa okkur yfir jólin og þangað til hann byrjar á 3 ári í Háskólanum á Hólum í janúar. Það er mikil forréttindi að hafa gott fólk í kringum okkur að hjálpa okkur við umhirðu og þjálfun í hesthúsinu og því sem þarf að gera hverju sinni. Svo nú vantar okkur aðstoðarmanneskju í vetur til aðstoðar, endilega ef einhver hefur áhuga eða veit um einhvern að hafa samband við okkur.

Randi og Haukur fóru á fyrirlestur á vegum Félagstamningarmanna í Mosfellsbæ um helgina, þar voru þau Rúna Einarsdóttir og Jóhann Skúlason með mjög áhugaverð erindi. Alltaf gaman að fá innsýn í þjálfunaraðferðir og áherslur hjá öðru hestafólki sem stendur í toppbaráttunni á heimsvísu. Gaman hvað það var margt fólk sem sá sér fært að mæta í öllu jólastressinu.

Svaki og Vanessa Kirchmayr

13. desember 2011

Gleðitími hrútana hafinn

Við erum með kindur okkur til gamans og eru ekki minni pælingar í fjárræktinni heldur en í kringum hrossin. Við slepptum hrútunum í um helgina og hófust þá gleðidagar hjá þeim sem þeir hafa beðið eftir síðustu vikurnar. Fyrir þá sem langar að fræðast um hrúta kostinn hér á bæ set ég hér smá um þá. 1. Arnar frá Haukatungu sem er lambhrútur sem Randi keypti í  haust, hann er svartbotnóttur og glæsilegur verðlaunahrútur stóð meðal annars 2 í flokki mislitra á Snæfellsnesi í haust hlaut meðal annars 18,5 fyrir læri. Hann er sonur Bikars frá Hesti sem er svo undan honum Grábotna sem menn halda ekki vatni yfir þessa dagana. 2 . Búkki frá Hesti undan Rafti frá Hesti, hann er 5v og eignuðumst við hann í haust. 3. Er veturgamall hrútur sem við fengum á hesti í haust af góðum og fitulausum ættum frá Hesti. Það verður svo spennandi að sjá útkomuna í vor og næsta haust. Myndin af þeim ferhyrntu  sem eru ættaðar frá Hallkelsstaðarhlíð og bera þau skemmtilegu nöfn Sigrún og Skúla með hana Guðmundu litlu á milli sín, sem var ein besta gimbrin í haust. Fóru þær ferhyrntu undir hann Arnar og koma svo vonandi með ferhyrntar svartbotnóttar gimbrar í vor saman rekin vöðvabunkt og fitulausar.

09. desember 2011

Frostið bitur í þessa dagana.

Það er búið að vera óþarflega svalt síðustu dagana en það sem heldur á manni hita við tamningarnar er þetta geggjaða lyftufæri!!!

Stoltur eigandi mátar gersemið sitt.

Verða án efa svekjandi tímar ef það þiðnar á næstunni. Enn eins og Benni Líndal sagði ef hesturinn er eins góður í vor og á ís fyrripart vetrar hefur þjálfunin tekist vel. Þrátt fyrir kuldatíð gengur þjálfun sinn vanagang og eigendur líta við og skoða sín hross sem verið er að skóla til. Setjum hér með mynd af honum Dagbjarti í Hrísum vini okkar sem kom og tók út hryssurnar sínar núna í vikunni, og setjum líka með mynd til gamans af kettinum Bjarti sem við fengum hjá þeim Dísu og Dagbjarti, sem er orðin sérlegur sófaköttur og tölvusérfræðingur upp á síðkastið.