2. janúar 2012

Jól og áramót að baki:)

Kristín Eir að virða fyrir sér Elg

Þá eru jól og ármót með tilheyrandi veisluhaldi að mestu lokið í þetta skiptið, allir vel mettir og sælir. Hátíðirnar gengu sinn vanagang og var skepnum sint eins þurfti því ekki er hægt að loka að fara í frí eins margir gera. Við reynum þó að hægja aðeins á starfseminni yfir rauðustu daganna. Randi, Haukur og Kristín Eir fóru til Noregs yfir jólin og komu til baka á gamlársdag. Þau áttu góða daga með fjölskyldu og vinum með tilheyrandi jólaboðum og hittingum. Fóru þau og skoðuðu skíðastökkpallinn í Holmenkollen í Ósló og svæðið þar í kring, skoðuðu skíðasafnið sem er staðsett undir stökkpallinum sem er mjög flott í alla staði, mæli með því að kíkja þarna ef þið eigið leið um Ósló. Set hér með myndir frá Noregi.                  

Kristín Eir að máta og skoða jólapakka
Skiðastökkpallurinn Holmennkollen.
Þrjár kynnslóðir í gönguferð
Mæðgurnar á fleygi ferð
Feðgin á ferð
Á ísbjarnarslóð