9. desember 2011
Það er búið að vera óþarflega svalt síðustu dagana en það sem heldur á manni hita við tamningarnar er þetta geggjaða lyftufæri!!!
 |
| Stoltur eigandi mátar gersemið sitt. | |
Verða án efa svekjandi tímar ef það þiðnar á næstunni. Enn eins og Benni Líndal sagði ef hesturinn er eins góður í vor og á ís fyrripart vetrar hefur þjálfunin tekist vel. Þrátt fyrir kuldatíð gengur þjálfun sinn vanagang og eigendur líta við og skoða sín hross sem verið er að skóla til. Setjum hér með mynd af honum Dagbjarti í Hrísum vini okkar sem kom og tók út hryssurnar sínar núna í vikunni, og setjum líka með mynd til gamans af kettinum Bjarti sem við fengum hjá þeim Dísu og Dagbjarti, sem er orðin sérlegur sófaköttur og tölvusérfræðingur upp á síðkastið.
 |
| Efnileg frá Hrísum | |
 |
| Hefur það gott á sófanum. | |